Samkirkjumál og erlent samstarf
VerksviðÞjóðkirkjan tekur þátt í samkirkjulegu (ekumenisku) starfi bæði erlendis og á Íslandi. Þjóðkirkjan er aðili að ýmsum heildarsamtökum kirkna og kirknstofnunum. Þjóðkirkjan er stofnaðili Lútherska heimssambandsins (1947); Alkirkjuráðsins (1948); Norræna samkirkjuráðsins (1949); Kirknasambands Evrópu (1964) og Porvoo-kirknasambandsins (1995).
Samkirkjunefnd
Biskup Íslands er yfirmaður samkirkjumála þjóðkirkjunnar. Honum til stuðnings er Samkirkjunefnd þjóðkirkjunnar, sem starfar samkvæmt starfsreglum nr. 1006/2005 frá Kirkjuþing. Formaður nefndarinnar er séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir.Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga
Þjóðkirkjan er aðili að Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga, sem er samvinnuvettvangur kristinna kirkna og kirkjulegra hreyfinga á Íslandi. Aðild að þessari nefnd eiga: Aðventistar, Fríkirkjan Vegurinn, Hvítasunnukirkjan, Hjálpræðisherinn, Íslenska Kristkirkjan, Kaþólska kirkjan, Óháði söfnuðurinn, Betanía og Þjóðkirkjan. Fulltrúar þjóðkirkjunnar eru: María Ágústsdóttir og Arna Grétarsdóttir.Porvoo-samþykktin
Hægt er að lesa Porvoo-samþykktina hér á vefnum.Charta Oecumenica
Hægt er að lesa Charta oecumenica í íslenskri þýðingu hér á vefnum
Alþjóðlegt samstarf
Heimsþing Lútherska heimssambandsins 2017
Lútherska heimssambandið The Lutheran World Federation
Heimsráð kirkna World Council of Churches
Kirknaráð Evrópu The Conference of European Churches